Hæhó!
Miiiiikið búið að vera á döfinni hjá mér síðast liðnar
vikur...
er byrjuð í skólanum og svei mér þá... mér líður eins og ég sé
að fara bráðum í annar próf og önnin vaaaar að byrja! Komst að því
á þriðjudaginn síðasta að ef ég ættla að taka Cidesco próf þá verð
ég að gera það þegar ég útskrifast eða eftir 3 ár... hmmmmm er ekki
voðalega spennt fyrir því að bíða í 3 ár þannig mín dreif sig bara
í kvöld skóla í FB og skráði sig í fjarnám í FÁ... he he oj!
Þannig næstkomandi mánuði og vikur verður bókin og námið í
aaalgjörum forgangi! Og ég er að segja það hér og nú að ef ég
brillera í þessu alle sammen þá verður kokteil boð í litlu
,,íbúðinni" minni, djamm í bænum og skot á línuna frá mér!!! 
En annars, pabbi minn og mamma er búin að vera massa duglega við
að koma mér út í bílskúr sem allra fyrst! Brynjar ,,frændi" kom og
var að hjálpa pabba með rafmagnið um helgina, málningu var smellt á
veggina í dag, fjárfesti í parketi á föstudaginn og nú er
bara að bíða eftir píparanum og smá dútlerí og aldrei að vita nema
ég komis inn um næstu helgi... vá get ekki beeeðið 
Gunni litli keypti sér bíl á laugardaginn... litli kútur komin á
brumma....
ég er orðin svo gömul! heheh en nei, hann keypti
sér Nissan Almeru, svarta (heheheh ef einhver fattar, en mér finnst
þetta svo ógeeeðslega fyndið af ýmsum ástæðum! hehehe Húmor!)

Smá staffa djamm í gær, kíkti með nokkrum úr ,,Steinar Waage"
genginu
Kítkum á Rex.... hef aldrei farið þarna inn og ættla mér
ekki að gera það aftur! Fyrsta skipti sem ég fer á skemmtistað
niðri í bæ og meðal aldurinn er 38+!!! Svo þegar við Hildur S
löbbuðum út heyrðist líka í einum dyraverðinum... ,,hva, voru gömlu
kallarnir ekki að gera sig?" ehhehe
við bara hlógum...
En hann Siggi frændi er að meika það feitt í hinum stóra Blogg
heimi hehehe Blogg síðan hans.... blog.central.is/rssn er að
mala gull þessa dagana! Og eitt að lokum, hvernig væri nú að fara
að taka sig saman í andlitinu og drullast til að vaka eitt kvöld og
kjósa hann Magna! Munaði einhverjum örfáum atkvæðum í síðustu
viku... Vaka og kjósa!!!!
1000 knúsar og koss á kinn...................
..langaði að koma þessu á
framfæri, en vildi ekki að færslan hennar Ingibjargar minnar myndi
hverfa..
en eru þið að pæla í því
hvað Magni er góóóður
ég er ekki svona nátthrafn sem nær að
halda sér vakandi til þess að horfa á hann en horfi eins oft og ég
get á endursýningarnar .. ég hef bara einu sinni kosið
en ætlaði
í síðustu viku að reyna að vakna og kjósa en það gekk ekki
alveg
var pínu þreytt, en kannski gegnur það næst .. ég ætla
allvega að reyna kjósa hann í næsta þætti því ég vil ekki að hann
detti út alveg strax .. 
ætla að láta þetta fylgja
.. ég er búin að hlusta á þetta aftur og aftur og aftur og aftur

- Hrafnhildur -